26. febrúar 2008 klukkan 14:48
Allt í lagi þá! ég skal hripa eitthvað asnalegt hérna svo þið hættið að væla (öll hvað...3 sem lesið þetta...)
uhm... Vinna, eins og venjulega.
vinnavinnavinna.
ú! já, ég er semsagt komin með herbergi á fimmtu hæð (brrr..) á hringraut 39 (fyrir ofan bakaríið) sem kærastan mín og kærastinn hennar búa á annarri hæð.
hver vill hjálpa mér að flytja? *glott*
þetta er lítið og yndislegt, eiginlega fullkomið greni fyrir ref eins og mig, 4,17 á lengd og 2,20 á breidd og ótrúlega vel inréttuð og plássmikil.
plús, það fylgir
eldvarnarexi. Fokk-já.
reyndar er þetta meira eins og að búa með biritu (kærustunni minni, sorrí að þú þurftir að finna þetta út svona íris stóra, litla, mossi og alex.) og Ásgeir kærastanum hennar sem er líka bróðir minn/karlkyns ég. (þetta er allt mjög flókið og fundið upp á leiðinlegum vinnudögum/sykurvímukvöldum) nema ég er með sérherbergi uppi á 5tu hæð.
ójá, og auðvitað Apep, nakta kettinum þeirra.
nakta, dónalega kettinum þeirra.
hann er enginn smá ruddi, þið munuð skilja seinna.
en semsagt... lífið er frekar awesome, ekki sátt við þennann snjó og kulda en hey, ég á rosa fínann víking til að hjúfra hjá ;)
Helenaaaaa!~
ps. D&D hópurinn er aðeins 3 meðlimir akkúrat núna (eigill, stóra og regína( þeirra, ekki mín)) þannig að allir sem vilja vera memm endilega gerið eins og talhólfið mitt forðum (og kannski enn í dag) skipar..
"skildu eftir skilaboð og segðu eitthvað ódauðlegt."
pps. updeitaði "helenan" flipann.
Helena J. Vandoom